Check out my photos on Mynda albúmið okkar !

Thursday, June 22, 2006
Búið í bili

Góðan daginn gott fólk.

Það er náttúrulega alveg fullt af mánuðum síðan að ég hef látið heyra í mér, greinilega bara búið að vera svona brjálað að gera hjá mér síðan ég flutti aftur heim á klakann! Big Smile

Þar sem að ég hef greinilega bara ekki tíma til þess að blogga, eða þá að ég hef barasta ekkert skemmtielgt að segja...þá hef ég ákveðið að hætta þessu bloggveseni.Tongue

Takk fyrir að vera svona dugleg að lesa og kommenta síðustu árin.

Takk og bless!

Lína Langsokkur.

 


Posted at 08:48 am by langsokkur
Comments (2)  




Wednesday, March 01, 2006
Á ferð og flugi

Jæja þá er best að segja eitthvað sniðugt.

Um.....

Ég er að fara til Þýskalands á föstudagin. Það verður örugglega voðalega mikið stuð. Ég er að fara að heimsækja Kristinu vinkonu mína sem býr þar. Við ætlum bara að hanga og hafa voða góða og skemmtilega stelpu helgi. Það verður kannski smá Vodki og allavega pottþétt þýsk sætabrauð!! :) Hún er allavega búin að lofa mér að þau séu voðalega góð, þannigð að ég er rosa spennt.

Já ég ætla víst að skilja hann Gumma minn eftir aleinan heima. Það verður hvort eð er svo rosalega mikið að gera hjá honum, hann hefur engan tíma fyrir mig hvort sem er. Hann þarf að gera eitthvað voða langt heima próf sem á eftir að taka hann alla helgina og betur það.

Svo kem ég aftur til Svíþjóðar seinni partin á mánudagin. Þá verð ég heima í 2 nætur. Svo förum við eld, eld eld snemma (kl 3) á miðvikudags morgun út á flugvöll. Þá förum við til Ítalíu. Við fljúgum til Róm. Verðum þar í einn dag, á meðan við erum að biða eftir fluginu okkar til Feneyja. Við ætlum bara að leigja okkur bíl og keyra aðeins um sveitir ítalíu, kannski kíkja til Napels.  Svo klukkan 8 um kveldið fljúgum við til Feneyja, verðum þar í 3 nætur. Fljúgum svo aftur til Róm og verðum þar í 3 nætur.

Ég veit hvað þið haldið...nei peningarnir vaxa ekki á trjám hérna úti í Svíþjóð. En það sem vex hins vegar á trjám eru ódýr flugfélög. Við fengum öll flugin frá svíþjóð-Róm-Feneyjar-Róm-Sviþjóð á 13 þúsund krónur fyrir okkur bæði!!!( 6500 á mannin) Ég kæmist ekki ein fram og itl baka frá Egilstöðum fyrir þennan pening! Maður bara stenst ekki mátið þegar maður fær svona gott verð, þó svo að maður sér fátækur námsmaður og eigi engan pening. við ákvaðum bara að sleppa því að borða í viku í staðin :)

Svo er netið að gera góða hluti með hótel leitina. Hægt að finna góð og ódýr hótel alls staðar. Og það sem besta er, maður getur líka farið á svona vefi þar sem að hótel gestir segja hvernig hótlein eru í raun og veru. Bara geðveikt sko. Þannig að maður veit alveg hvað maður myndi vera að fá fyrir peningin. 

Jæja ætli ég láti þetta ekki duga í bili.

Kveðja úr góða veðrinu, Það er akkurat 0°C núna....bara Benedorm veður miðað við hvernig þetta hefur verið undanarið.

Lína


Posted at 09:27 am by langsokkur
Comments (4)  




Wednesday, February 22, 2006
Ég á líka Þúsundþjalasmið...

Dagur 6.

Stór partur af mér er farin að halda að táin á mér sé bara alveg að fara að detta af. Aumingja táin mín...bv

Kannski er hún bara brotin greyið...er allavega nógu anskoti vont.

Vá hvað háhælaðir skór verða bara geymdir fyrir sérstök tilefni eins og JÓLIN, þegar ég get farið úr þeim eftir klukkutíma....

Já ég er nú ekki frá því að Gulla hafi rétt fyrir sér, kannski eru háhælaðir skór verkfæri döfulsins.

Ég er samt voða gella þegar ég er komin í svona fína skó.

En nei, hingað og ekki lengra, núna eru það bara skær bleiku Nike skórnir mínir.

 

Ég steingleymdi að deila með ykkur hvað ég á handlagnan mann. Ég var búin að vera að föndra, setja myndir af okkur frá Tyrklandi og eitthvað í ramma og gera voða fínt. Ég bað hann Gumma minn að hengja þetta upp á vegg fyrir mig.

Á meðan var ég í eldhúsinu að elda. Svo kem ég inn í herbergi til að skoða verkið.

Já já þetta leit nú ágætlega út svna á veggnum. En svo þegar að ég skoðaði þetta betur kom í ljós að hann Gummi minn Þúsundþjalasmiður hafði ekki fundið neitt aftan á myndunum til að hengja þær upp á, þannig að hann ákvað að negla bara í gegnum rammana.

Þetta er mjög smekklegt Wink

Já hann er sko Þúsundþjalasmiður hann Gummin minn.

En hann er allavega algjört krútt, það er alveg nóg fyrir mig.

 Ég sé bara um að hengja upp myndir í framtíðini. Shades

 


Posted at 04:12 pm by langsokkur
Comments (4)  




Monday, February 20, 2006
París 2006

Jæja þá er maður komin aftur heim til Svíþjóðar eftir mjög vel heppnaða ferð til Frakklands.

Þetta var alveg æðislega skemmtileg ferð. Maður á sko eftir að lifa á þessari ferð í langan tíma.

Við tókum náttúrulega endalaust mikið af myndum og ef þið hafið áhuga að skoða svona þær helstu þá getið þið skoðaða þær á mynda albúminu okkar. Ef þið skrollið alla leið niður á síðunni alveg neðst fyrir neðan neðstu færsluna þar finnið þið link. Ég er að vinna í því að fá linkin til að vera til hliðar á síðunni, en ég hef bara ekki komist lengar eins og er. Reyndar þá er líka svona linkur efst á síðuni, hérna rétt fyrir ofan...

Við skoðuðum náttúrulega Effel turnin. Hann var ekkert smá flottur. Svo skoðuðum við Sigurbogan, Notre Dame, Sacre Coeur, Garfhýsi Napoleons og fulllt fulllt meira. Þar á meðal Louvre safnið. Vá! Þvílíkt safn! Það var endalaust flott! Og Mona Lisa!! Það eru ekki orð til að lýsa því hvað hún er endalaust flott!

Við vorum heppin með veður, svona miðað við árstíma. Það var 8-9 stiga hiti. Það voru smá skúrir á fimmtudeginm og smá vindur, en annars var þetta bara mjög fínt. við klæddum okkur bara vel, og svo héldum við náttúrulega á okkur hita með því að labba endalaust mikið.

Ég vildi náttúrulega vera algjör gella og skvísa, þannig að ég tók bara með mér tvenn háhæluð stígvél. Önnur eru ekki eins há og eru venjulega mjög þægileg. En ég hef aldrei áður labbað stanslaust í 10 klukkutíma á þeim. Eftir fyrsta dagin fékk ég miklu meira en nóg af því að vera gella og þurfit að kaupa mér ný flatbotna stígvél til þess að halda fótunum!! Fæturnir á mér voru nærri því dotnir af í orðsins fyllstu merkingu. Ég er ennþá, 4 dögum síðar, dofin í 2 af tánum mínum.!!

Ég ætla aldrei að reyna að vera gella aftur! Næst eru það bara gallabuxur og Nike strigaskórnir mínir! :)

Læt þetta duga í bili, kem með fleiri Parísar sögur síðar.

Kveðja frá Svíþjóðinni,

Lína

Nokkrar myndir

 
 
 
 
 
Við fórum á mexikanskan veitingastað...rosaleg frönsk :)

Posted at 04:27 pm by langsokkur
Comments (4)  




Tuesday, February 14, 2006
París

Jæja ætli ég verði nú ekki að segja frá Þorrablótinu sem var síðustu helgi. Ég verð nú ekki lengi að því...því ég fór ekki......Shocked

Það var svo hryllilega kallt úti -17°C, og blótið var í svona klukkutíma fjarlægð og við erum ekki með bíl hérna úti. Þannig að við sáum fram á það að við myndum sennilega verða úti á leiðini heim, þannig að við ákváðum bara að vera bara heima og láta fara vel um okkur.

Það var bara voðalega notalegt. Það hefði auðvitað verið voðalega gaman að fara, en svona erum við bara orðin gömul, viljum frekar vera heima heldur en að fara á djammið. Shades

Jæja svo er það bara Paris here we come!!

Við Gummi förum til Parísar á morgun. Við erum ekkert smá spennt. Búin að finna á netinu allt sem við ætlum að skoða og erum komin með voða plan fyrir alla dagana.

Ég er meira að segja búin að pakka næstum því ekki of mikið Tongue

Svo er Valentínusardagurinn í dag.... Happy Valentinesday allir.

Í tilefni dagsins bakað ég pönsur handa Gumma mínum. Hann var að vana alveg voðalega þakklátur, og fékk ég fullt af kossum fyrir. :)

Jæja læt þetta duga í bili. Svo skal ég koma með fullt af myndum og fregnum þegar ég kem frá París.

Bið að heilsa í bili...

Smá myndahorn:

Ég og Tristan Snær litli frændi minn, sonur hennar Sigrúnar.


Posted at 05:02 pm by langsokkur
Comments (3)  




Friday, February 10, 2006
Crazyness!

Það er greinilegt að síðasta bloggið mitt var alveg með eindæmum leiðinlegt og langt. Það bara commentaði engin, það er sko langt síðan það hefur gerst. Ég skil það samt alveg, þetta var mjög LANGT blogg. Kemur ekki fyrir aftur :)

 

En allavega, það er náttúrulega allt að verða vitlaust hérna í Stokkhólminum eins og venjulega. Ég var að tala við pabba í gær og hann liggur við bannaði mér að fara út úr húsi út af öllum þessum Múhameð spámanna mótmælendum. Það er mjög mikið af múslimum hérna í hverfinu okkar.

 

En ég hef nú ekkert orðin vör við að þeir hafi eitthvað verið að æsa sig. En pabbi sagði mér að bara svona til öryggis þá ætti ég ekkert að koma nálægt þeim og vera ekkert að minnast á þetta við nein!! Hann pabbi minn hefur svo miklar áhyggjur af mér alltaf, ef það eru ekki hvirfilvindar í Kansas, þá eru það múslimar í Svíþjóð... J

 

Svo erum við að fara loksins á Þorrablótið á morgun, verður gaman að komast aðeins út á lífið. Er ekki ennþá búin að ákveða í hverju ég ætla, en það verður bara að koma í ljós á morgun þegar að ég er búin að fara í allar flíkurnar mínar svona 3-5 sinnum. J Ég barasta skil ekki af hverju þetta þarf að vera svona erfitt.

 

Jæja ætli ég láti þetta ekki duga í bili. Við erum að fara að spila Póker, við fjölskyldan að Röntgenvägen 1. Ég gaf Gumma pókersett í jólagjöf og við ætlum loksins að láta verða að því að vígja það.

 

Kveðja úr útlendingahverfinu,

Lína

 

 


Posted at 08:04 pm by langsokkur
Comments (3)  




Thursday, February 09, 2006
Allt að verða klukk-vitlaust!

Meira klukkeríklukk

Enn eitt helv...klukkið!!!Angry  Nei, nei mér finnst þetta alveg rosalega skemmtilegur leikur...takk fyri að leyfa mér að vera með Lena Dóra...Shades

Here goes nothing:


Fjögur störf sem ég hef starfað við á ævinni:

  • Hraðfrystihús Eskifjarðar, fiskvinnsla og rækjuvinnsla, í alltof mörg ár.
  • Gjaldkeri hjá Íslandspósti, Esk og Rvk.
  • Au Pair í Bandaríkjunum í alltof mörg ár... Surprise
  • Skúringarkona

Þetta eru allt alveg voðalega spennadi störf og hef ég nú unnið við mikið fleiri spennandi störf í viðbót.

Fjórar myndir sem ég get horft á aftur og aftur

  • Grease
  • Fjögur Brúðkaup og jarðarför
  • Shawsank Redemption
  • When Harry met Sally

Mér finnst alveg æðislega gaman að horfa á fullt af góðum myndum og eru þessar fjórar bara dropi í hafið.

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

  • Eskifjörður, Ísland
  • Reykjavík, Ísland
  • Kansas, Bandaríkin
  • Stokkhólmur, Svíþjóð

Búið að vera sko meira en nóg flakk á mér. Ég var einmitt að telja það upp um dagin hvað ég hefði haft mörg heimilisföng um ævina og niðurstaðan var 13!!l Dísus, hvað mig hlakkar til að hætta að flytja. Tongue

Fjórir sjónvarpsþættir sem ég fíla að horfa á:

  • American Idol ( Ég veit!!)
  • Grey´s anatomy, besti nýji þátturinn.
  • Það var lagið ( ég elska að syngja með! ) Algjör nörd :)
  • Friends ( Ég er búin að eignast 7 seríur, alltaf að komst nær takmarkinu...sem er að eignast þær allar!!! Smile

Fjórir staðir sem ég hef farið í frí:

  • Kanarý
  • Seattle, Washington
  • Key West, Florida
  • Bodrum, Tyrkland

Þetta er nottla líka bara dropi í hafið. Svo eftir viku þá get ég bæt París á listan!! Wink

Fjórar heimasíður sem ég heimsæki daglega: 

  • mbl.is
  • langsokkurinn.blogdrive.com
  • barnaland.is
  • studmundur.blogdrive.com
  • Og svo kíkji ég náttúrulega á alla hina líka Big Smile

    Fjórar uppáhalds matartegundir:

    • Grænmeti
    • Mömmumatur
    • Pasta
    • Kartöflur

    Fjórir cd sem ég get ekki verið án:

    Ég er nú eiginlega bara alveg hætt að hlusta mjög mikið á geisladiska. Þetta er bara allt í tölvuni. En ef ég þarf að velja þá vel ég 4 diska með Celine Dion. Shades

    Fjórir staðir sem ég myndi frekar vilja vera á:

    • Heima á Íslandi...með Gumma mínum.
    • Á ströndinni að sóla mig...með Gumma mínum að sjálfsögðu.
    • Í Kína að skoða Kínamúrin með Gumma.
    • Heima hjá mömmu og pabba...og Gummi fær nottla að koma með líka Tongue

    Fjórir bloggarar sem ég klukka:

    Sorry...Shades

    • Ríkey
    • Rósa Munda
    • Gulla Skvísa
    • Rósa Svíji

    Jæja ætli ég láti þetta bara ekki duga fyrir dagin í dag. Það tók mig svona 3 klukkutíma og 23 mínutur að klára þetta blessaða klukk, þannig að ég ætla að fara að leggja migTongue

    Knús frá Svíþjóð,

    Lína



    Posted at 02:46 pm by langsokkur
    Segdu eitthvad snidugt...  




    Sunday, February 05, 2006
    Guð minn hvað það er kalt úti...

    Jæja þá er enn ein helgin komin og farin. Þetta var bara fínasta helgi. Róleg og góð. Fórum í fyrsta skipti saman í nýju ræktina okkar á laugardagin. Það var bara fínt, voða fín rækt.

    Gummi kvartaði eitthvað yfir því hvað tækin væru gömul, en mér fannst þau bara fín. Gerði nú ekkert voðalega mikið, get nú lítið gert svo sem, þannig að ég þurfti að taka því rólega. Annars er það að frétta að ég er loksins að fara í blessaða sneiðmyndatöku!

    Svona fyrir þá sem ekki vita þa er ég búin að vera eitthvað slæm undanfarið í annari hendinni og brjósti...ég veit too much information!!!...en er allavega að vinna í því að fá eitthvað gert i þessu. Big Smile

    Svo í dag var ´laundry day´ þannig að það var notla fjör eins og venjulega. Ég setti í 7 vélar, samt þvoði ég síðast fyrir viku. Gummi var í vægu sjokki yfir því að ég skildi hafa þvottin í allar þessar vélar, sagði að hann hefi sko pottþétt bara hent þessu í eina!! Surprise

    Guði sé lof að ég skuli sjá um þvottinn!! Shades

    Mamma skilid heldur ekkert í þessu þegar ég sagði henni allar þessar þvottasögur mínar og spurði mig hvort ég myndi þvo af Sunnevu og Kalla líka....heehehhe....ha? nei, bara af mér og Gumma.Tongue

    Svo er bara fótbolti alveg í fullum gangi núna. Liverpool vs. Chelsea...mest spennandi. Vona svona mín vegna að Liverpool vinni...annars verður hann Gummi minn sem ónýtur maður það sem eftir er af degi.

    Jæja, ætli ég láti þetta ekki duga í bili. Að lokum er ég svo með smá svona skemmtilega skoðunarkönnun sem ég stal af blogginu hennar Gullu skvísu.

    Endilega spreytið ykkur, gaman að sjá hvað þið vitið mikið um mig.

    Kveðja úr -10°C,

    Lína.

    1. Hver er augnlitur minn??
    2. Hver er hárlitur minn??
    3. Númer hvað að skó nota ég??
    4. Hvað finnst mér skemmtilegast að gera??
    5. Hvernig bíl á ég??
    6. Hvar vinn ég/hvað er ég að læra??
    7. Hver er uppáhalds liturinn minn??
    8. Hvernig persóna er ég??
    9. Hvernig eyði ég frítíma mínum??
    10. Hversu vel þekkiru mig??

    Ég varð bara að setja þessa mynd inn. Þetta er Rökkvi Þór, sonur hennar Þóreyjar vinkonu. Algjört rassgat.

     


    Posted at 06:12 pm by langsokkur
    Comments (5)  




    Wednesday, February 01, 2006
    Lost

    Jæja þá er enn einn þátturinn af Lost búin. Það er komin 9 þáttur af 2 seríu hérna í Svíþjóð. Ég skal notla ekkert segja hvað gerist, en ég verð bara að segja að ég er orðin pínu pirruð út í Lost. Ég verð eiginlega alltaf smá pirruð í hvert skipti sem ég horfi á þátt. Það gerist nákvæmlega EKKERT!!! Jú það gerist notla fullt, en samt ekkert. Það sem þessum rithöfundum dettur ekki í hug að skrifa inn í þessa þætti, þeir ættu að fá verðlaun fyrir hugmyndaflug.

    Ég verð nú bara að segja fyrir mig, að Lost er ofmetin. Mér finnst þeir bara hafa misst spennuna. Eða kannski er ég bara pirruð af því að maður fær aldrei að vita neit!!! Þetta heldur bara endalaust áfram......goes on....and on.....and on...Angry

    Að öðrum fréttum. Við Gummi erum að fara til Parísar eftir tvær vikur. Okkur hlakkar notla alveg rosalega til. Ætlum í svona rómó ferð fyrir Valentínusardagin...ég veit, er mest Amerísk!!! Tongue  Við ætlum sem sagt að vera í 3 nætur. Komum á miðvikudagskveldi og förum aftur heim á laugardagskveldi.Fundum alveg voða fínt hótle, mjög nælægt miðbænum. Og svo er planið bara að labba af okkur fæturna. Bara skoða allt sem mögulega er hægt að skoða á þrem heilum dögum.

    Já svo erum við að fá heimskókn frá Þýskalandi eftir viku. Mike vinur hans Gumma er að koma í heimsókn verður hjá okkur í 4 daga. Það verður örugglega voða gaman að fá heimsókn. Erum allavega voða spennt yfir þessu öllu saman.Wink

    Það á víst að djamma alveg fullt. Það verður stráka djamm á föstudeginum og svo ætlum við öll saman á Íslenskt Þorrablót hérna í Stokkhólmi. Það verður örugglega voða stuð. Erum reyndar búin að ákveða að fara ekki á matin. Sem er kannski smá glæpur þegar að maður er að fara á Þorrablót, en Gummi borðar ekki þorramat og ég er grænmetis æta...og vinir okkar borða ekki þorramat. Þannig að þetta lá eiginlega ljóst fyrir að það væri sniðugast að fara bara á ballið...sem byrja kl 21. (Ekkert smá snemmt) Surprise

    Jæja komið nóg bull í bili.

    Takk fyrir að vera svona dugleg að kommenta, gaman að vita að ég er ekki búinað missa alla lesendurna mína eftir þetta mjög svo langa Jólafrí mitt. Wink

    Kveðja frá Stokkhólminum,

    LínaSmile

    (P.s. Var að uppgvöta broskallana...,missti mig smá...Shades)


    Posted at 10:14 pm by langsokkur
    Comments (4)  




    Sunday, January 29, 2006
    Jólafríið búið

    Jæja þá er maður komin aftur til Svíþjóðarinnar. Búin að vera hérna í heila viku núna. Var heima í sex vikur. Var ekkert smá gaman að vera heima svona lengi.

    Ég er alltaf mest lélegust að blogga þegar að ég er heima...eins og sjá má á síðustu færslum... Shades

    Þá ætla ég að fara snöggvast yfir hvað er búið að gerast síðasta mánuðinn:

    Jólin komu. Það var notla æðislegt, best að vera heima um jólin. Borðaði alltof mikið af góðum mat, og spilaði fullt. Bara best!

    Jólaball á Egs kom svo næst, það var ágætt, fór með Gumma mínum og Kristjönu systur hans.

    Svo eignaðist Sigrún frænka lítin og sætan strák þann 27 febrúar. Hann er enn óskírður, en er strax orðin mesti grallari. :) Hann verður svo skýrður þann 4 feb, þannig að ég kem með update on that one.

    Svo kom árshátíðin hjá Eskju, mig langaði ekkert smá mikið að fara. En var slöpp og komst ekki...missti víst af heljarinnar balli.

    Svo komu áramótin. Þau voru bara mjög skemmtileg. Var með Gumma og hans fjölskyldu. Fór ekki á áramótaball.

    Björg frænka eignaðist litla sæta stelpu þann 2. Jan. Hún er algjört raskat, með alveg mest mikið af svörtu hári. Hef reyndar bara séð myndir.Hún er líka enn óskírð.

    Svo fóru allir í vinnu aftur. Gummi var að vinna í álverinu, mamma líka og pabbi inn í bræðslu..Þar af leiðandi var ég mikið bara ein heima á dagin. Sem var bara ágætt, kom allavega miklu í verk.

    Svo eignaðis Sigríður vinkona litla sæta stelpu þann 18. Janúar. Kom bara akkúrat á settum degi, ekkert smá studvís. Það er ekki en búið að skýra hana, en maður þarf vonandi ekki að bíða lengi eftir að fá að vita hvað hún heitir.

    Svo fórum við suður.

    Svo fórum við út þann 22. Jan.

    Svo er bara búið að vera voðalega rólegt hjá okkur síðan við komum heim. Vorum með matarboð í gær. Það heppnaðist bara alveg rosalega vel. Er mjög ánægð með það. Var bara mjög gaman. Ég drakk alveg fullt, alltof mikið...en það er nú önnur saga. Wink

    Jæja, læt þetta duga í bili. Orðið nógu langt og leiðinlegt eins og er.

    Bið að heilsa. Mun vera duglegri að bulla eitthvað á þessari bull síðu minni.

    Kveðja, Lína


    Posted at 07:23 pm by langsokkur
    Comments (6)  




    Next Page

    Check out my photos on Mynda albúmið okkar !

       

    << November 2009 >>
    Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
    01 02 03 04 05 06 07
    08 09 10 11 12 13 14
    15 16 17 18 19 20 21
    22 23 24 25 26 27 28
    29 30


    If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




    rss feed