Check out my photos on Mynda albúmið okkar !

Sunday, January 29, 2006
Jólafríið búið

Jæja þá er maður komin aftur til Svíþjóðarinnar. Búin að vera hérna í heila viku núna. Var heima í sex vikur. Var ekkert smá gaman að vera heima svona lengi.

Ég er alltaf mest lélegust að blogga þegar að ég er heima...eins og sjá má á síðustu færslum... Shades

Þá ætla ég að fara snöggvast yfir hvað er búið að gerast síðasta mánuðinn:

Jólin komu. Það var notla æðislegt, best að vera heima um jólin. Borðaði alltof mikið af góðum mat, og spilaði fullt. Bara best!

Jólaball á Egs kom svo næst, það var ágætt, fór með Gumma mínum og Kristjönu systur hans.

Svo eignaðist Sigrún frænka lítin og sætan strák þann 27 febrúar. Hann er enn óskírður, en er strax orðin mesti grallari. :) Hann verður svo skýrður þann 4 feb, þannig að ég kem með update on that one.

Svo kom árshátíðin hjá Eskju, mig langaði ekkert smá mikið að fara. En var slöpp og komst ekki...missti víst af heljarinnar balli.

Svo komu áramótin. Þau voru bara mjög skemmtileg. Var með Gumma og hans fjölskyldu. Fór ekki á áramótaball.

Björg frænka eignaðist litla sæta stelpu þann 2. Jan. Hún er algjört raskat, með alveg mest mikið af svörtu hári. Hef reyndar bara séð myndir.Hún er líka enn óskírð.

Svo fóru allir í vinnu aftur. Gummi var að vinna í álverinu, mamma líka og pabbi inn í bræðslu..Þar af leiðandi var ég mikið bara ein heima á dagin. Sem var bara ágætt, kom allavega miklu í verk.

Svo eignaðis Sigríður vinkona litla sæta stelpu þann 18. Janúar. Kom bara akkúrat á settum degi, ekkert smá studvís. Það er ekki en búið að skýra hana, en maður þarf vonandi ekki að bíða lengi eftir að fá að vita hvað hún heitir.

Svo fórum við suður.

Svo fórum við út þann 22. Jan.

Svo er bara búið að vera voðalega rólegt hjá okkur síðan við komum heim. Vorum með matarboð í gær. Það heppnaðist bara alveg rosalega vel. Er mjög ánægð með það. Var bara mjög gaman. Ég drakk alveg fullt, alltof mikið...en það er nú önnur saga. Wink

Jæja, læt þetta duga í bili. Orðið nógu langt og leiðinlegt eins og er.

Bið að heilsa. Mun vera duglegri að bulla eitthvað á þessari bull síðu minni.

Kveðja, Lína


Posted at 07:23 pm by langsokkur

Sigga Rósa
February 1, 2006   11:21 AM PST
 
Gaman að sjá að þú ert komin aftur... Alltaf gaman að glugga í pistlana hjá þér ;o)
Lína
January 31, 2006   07:25 PM PST
 
En gaman að þið skulið hafa saknað bullsins í mér. Þá verð ég nú þokkalega að vera duglegri að bulla :)
Sigríður
January 30, 2006   04:51 PM PST
 
Loksins nýtt blogg... velkomin aftur sæta :o) var farin að sakna bullsins í þér!!
Rósa Munda
January 30, 2006   03:47 PM PST
 
Velkomin aftur ;)
skil vel að þú nennir ekki að blogga þegar það er fullt af familíu í kringum þig og nóg að gera í því, en gaman að fá þig aftur og gott að þú ert á lífi ;)
Ríkey
January 30, 2006   09:08 AM PST
 
Hæ sæta. En gaman að heyra loksins eitthvað frá þér... Ég lét nú líka verða að því að blogga í gær. Ekkert smá duglegar við ;D
Skotthildur
January 30, 2006   12:32 AM PST
 
Jæja gott að heyra frá þér! Mar var farinn að hafa áhyggur af því hvort þú værir ekki á lífi ;) en til hamingju með öll litlu börnin þín :)
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments







Previous Entry Home Next Entry

Check out my photos on Mynda albúmið okkar !

   

<< January 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed