Check out my photos on Mynda albúmið okkar !

Friday, February 10, 2006
Crazyness!

Það er greinilegt að síðasta bloggið mitt var alveg með eindæmum leiðinlegt og langt. Það bara commentaði engin, það er sko langt síðan það hefur gerst. Ég skil það samt alveg, þetta var mjög LANGT blogg. Kemur ekki fyrir aftur :)

 

En allavega, það er náttúrulega allt að verða vitlaust hérna í Stokkhólminum eins og venjulega. Ég var að tala við pabba í gær og hann liggur við bannaði mér að fara út úr húsi út af öllum þessum Múhameð spámanna mótmælendum. Það er mjög mikið af múslimum hérna í hverfinu okkar.

 

En ég hef nú ekkert orðin vör við að þeir hafi eitthvað verið að æsa sig. En pabbi sagði mér að bara svona til öryggis þá ætti ég ekkert að koma nálægt þeim og vera ekkert að minnast á þetta við nein!! Hann pabbi minn hefur svo miklar áhyggjur af mér alltaf, ef það eru ekki hvirfilvindar í Kansas, þá eru það múslimar í Svíþjóð... J

 

Svo erum við að fara loksins á Þorrablótið á morgun, verður gaman að komast aðeins út á lífið. Er ekki ennþá búin að ákveða í hverju ég ætla, en það verður bara að koma í ljós á morgun þegar að ég er búin að fara í allar flíkurnar mínar svona 3-5 sinnum. J Ég barasta skil ekki af hverju þetta þarf að vera svona erfitt.

 

Jæja ætli ég láti þetta ekki duga í bili. Við erum að fara að spila Póker, við fjölskyldan að Röntgenvägen 1. Ég gaf Gumma pókersett í jólagjöf og við ætlum loksins að láta verða að því að vígja það.

 

Kveðja úr útlendingahverfinu,

Lína

 

 


Posted at 08:04 pm by langsokkur

Lína
February 13, 2006   09:15 PM PST
 
Takk stelpur mínar fyrir löngu commentin. Já Rósa þú verður nú að gera eitthvað í þessu í Köben :)

Og já maður, Póker er sko nýja uppáhalds spilið mitt. Skemmti mér ekkert smá vel. Verð bara að vinna í því að læra að blöffa :)
Rósa Munda
February 13, 2006   09:58 AM PST
 
Þú ættir að vita hvað gengur á hérna á Íslandi út af múslimunum. Nákvæmlega ekkert. Jú nema Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra kom fram og lýsti því yfir að við Íslendingar myndum gera okkar til að lægja óróaöldurnar bara ef einhver myndi biðja okkur! Ég hló svo mikið að ég pissaði næstum því í mig. En ekki á morgun heldur hinn þá höldum við Sveinn til Köben og við kannski lægjum óróaöldurnar svona í leiðinni.
Ríkey
February 12, 2006   07:16 PM PST
 
jæja. ég sé að það er lítið að gerast í kommentunum hjá þér þannig að ég skal bara skrifa þér smá skilaboð.
Ég verð nú að vera sammála pabba þínum, eins gott að passa sig á þessum múllum, það er aldrei að vita hverju þeir taka uppá. Annars er ég viss um að hinn almenni múslimi sé nú bara svipaður mér og þér... eða svona allt að því ;)
Var annars gaman á þorrablótinu? Ég hlakka til að fara á okkar. Í þetta skiptið verður það haldið hérna mjög stutt frá okkur, sem er nottla frábært. Maður getur bara labbað heim og ekkert stress. Í hverju fórstu annars?
Finnst þér ekki gaman í póker? Ég er íkt klár í því sko.. blöffa hægri vinstri og allt. Ekki hægt að treysta neinu sem ég geri, hehe...
Jæja, ég vona að þetta hafi bætt fyrir kommentaleysið hjá þér. Farðu varlega í útlendingahverfinu.
Miss you.
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments







Previous Entry Home Next Entry

Check out my photos on Mynda albúmið okkar !

   

<< February 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed