Jæja þá er maður komin aftur heim til Svíþjóðar eftir mjög vel heppnaða ferð til Frakklands.
Þetta var alveg æðislega skemmtileg ferð. Maður á sko eftir að lifa á þessari ferð í langan tíma.
Við tókum náttúrulega endalaust mikið af myndum og ef þið hafið áhuga að skoða svona þær helstu þá getið þið skoðaða þær á mynda albúminu okkar. Ef þið skrollið alla leið niður á síðunni alveg neðst fyrir neðan neðstu færsluna þar finnið þið link. Ég er að vinna í því að fá linkin til að vera til hliðar á síðunni, en ég hef bara ekki komist lengar eins og er. Reyndar þá er líka svona linkur efst á síðuni, hérna rétt fyrir ofan...
Við skoðuðum náttúrulega Effel turnin. Hann var ekkert smá flottur. Svo skoðuðum við Sigurbogan, Notre Dame, Sacre Coeur, Garfhýsi Napoleons og fulllt fulllt meira. Þar á meðal Louvre safnið. Vá! Þvílíkt safn! Það var endalaust flott! Og Mona Lisa!! Það eru ekki orð til að lýsa því hvað hún er endalaust flott!
Við vorum heppin með veður, svona miðað við árstíma. Það var 8-9 stiga hiti. Það voru smá skúrir á fimmtudeginm og smá vindur, en annars var þetta bara mjög fínt. við klæddum okkur bara vel, og svo héldum við náttúrulega á okkur hita með því að labba endalaust mikið.
Ég vildi náttúrulega vera algjör gella og skvísa, þannig að ég tók bara með mér tvenn háhæluð stígvél. Önnur eru ekki eins há og eru venjulega mjög þægileg. En ég hef aldrei áður labbað stanslaust í 10 klukkutíma á þeim. Eftir fyrsta dagin fékk ég miklu meira en nóg af því að vera gella og þurfit að kaupa mér ný flatbotna stígvél til þess að halda fótunum!! Fæturnir á mér voru nærri því dotnir af í orðsins fyllstu merkingu. Ég er ennþá, 4 dögum síðar, dofin í 2 af tánum mínum.!!
Ég ætla aldrei að reyna að vera gella aftur! Næst eru það bara gallabuxur og Nike strigaskórnir mínir! :)
Læt þetta duga í bili, kem með fleiri Parísar sögur síðar.
Kveðja frá Svíþjóðinni,
Lína
Nokkrar myndir
Við fórum á mexikanskan veitingastað...rosaleg frönsk :)