Check out my photos on Mynda albúmið okkar !

Wednesday, March 01, 2006
Á ferð og flugi

Jæja þá er best að segja eitthvað sniðugt.

Um.....

Ég er að fara til Þýskalands á föstudagin. Það verður örugglega voðalega mikið stuð. Ég er að fara að heimsækja Kristinu vinkonu mína sem býr þar. Við ætlum bara að hanga og hafa voða góða og skemmtilega stelpu helgi. Það verður kannski smá Vodki og allavega pottþétt þýsk sætabrauð!! :) Hún er allavega búin að lofa mér að þau séu voðalega góð, þannigð að ég er rosa spennt.

Já ég ætla víst að skilja hann Gumma minn eftir aleinan heima. Það verður hvort eð er svo rosalega mikið að gera hjá honum, hann hefur engan tíma fyrir mig hvort sem er. Hann þarf að gera eitthvað voða langt heima próf sem á eftir að taka hann alla helgina og betur það.

Svo kem ég aftur til Svíþjóðar seinni partin á mánudagin. Þá verð ég heima í 2 nætur. Svo förum við eld, eld eld snemma (kl 3) á miðvikudags morgun út á flugvöll. Þá förum við til Ítalíu. Við fljúgum til Róm. Verðum þar í einn dag, á meðan við erum að biða eftir fluginu okkar til Feneyja. Við ætlum bara að leigja okkur bíl og keyra aðeins um sveitir ítalíu, kannski kíkja til Napels.  Svo klukkan 8 um kveldið fljúgum við til Feneyja, verðum þar í 3 nætur. Fljúgum svo aftur til Róm og verðum þar í 3 nætur.

Ég veit hvað þið haldið...nei peningarnir vaxa ekki á trjám hérna úti í Svíþjóð. En það sem vex hins vegar á trjám eru ódýr flugfélög. Við fengum öll flugin frá svíþjóð-Róm-Feneyjar-Róm-Sviþjóð á 13 þúsund krónur fyrir okkur bæði!!!( 6500 á mannin) Ég kæmist ekki ein fram og itl baka frá Egilstöðum fyrir þennan pening! Maður bara stenst ekki mátið þegar maður fær svona gott verð, þó svo að maður sér fátækur námsmaður og eigi engan pening. við ákvaðum bara að sleppa því að borða í viku í staðin :)

Svo er netið að gera góða hluti með hótel leitina. Hægt að finna góð og ódýr hótel alls staðar. Og það sem besta er, maður getur líka farið á svona vefi þar sem að hótel gestir segja hvernig hótlein eru í raun og veru. Bara geðveikt sko. Þannig að maður veit alveg hvað maður myndi vera að fá fyrir peningin. 

Jæja ætli ég láti þetta ekki duga í bili.

Kveðja úr góða veðrinu, Það er akkurat 0°C núna....bara Benedorm veður miðað við hvernig þetta hefur verið undanarið.

Lína


Posted at 09:27 am by langsokkur

Oddný
April 19, 2006   12:06 PM PDT
 
Ég myndi sko alveg sleppa því að borða í viku fyrir þetta maður... Enda er maður með nóg af aukafóðri utan á sér :) ha,ha.. Vonandi fréttir maður af þér þegar þú kemur næst til Íslands :)
Guðlaug Dana
March 6, 2006   07:12 PM PST
 
hæ skvísa:).. heyrðu hún þórey lét mig vita að þú værir að koma til íslands 18 mars er það rétt????
ef svo er þá er ykkur boðið í 25 ára afmælið mitt þann 18 mars um kvöldið heima hjá mér.. .láttu mig vita ef þið komist.
bestu kveðjur Dana:)))
Ríkey
March 5, 2006   08:03 PM PST
 
enn og aftur væri ég til í að vera að fara eitthvað. Er búin að liggja fárveik heima í nokkra daga núna. Það væri frábært að komast aðeins í burtu. Ég segi bara skemmtið ykkur ógeðslega vel.
Rósa Munda
March 2, 2006   01:59 PM PST
 
Flott hjá ykkur að ferðast svona á meðan þið eruð "laus og liðug" eins og maður segir um barnlaust fólk. Maður er orðin hálföfundsjúkur út í þessi ódýru flug. Og hver þarf svo sem að borða...
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments







Previous Entry Home Next Entry

Check out my photos on Mynda albúmið okkar !

   

<< March 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed