 |
|
Thursday, December 22, 2005
Vá hvað ég er léleg að blogga þegar að ég er heima hjá mér. Það er bara svo mikið að gera hjá manni alltaf. Sérstaklega notla núna, brjálað að gera að versla inn fyrir jólin og gera fínt og svona.
Fór til dæmis í Bónus á Egilsstöðum í dag með pabba. Vorum þar í örugglega 3 klukkutíma eða eitthvað. Ég er viss um að allir á Austurlandi hafa hugsað það sama og við...best að fara í Bónus í dag, og slepppa við alla trafíkina á morgun, Þorláksmessu.!... Vá hvað það var mest troðið! Varla hægt að fá bílastæði og svo var maður í svona innkaupakeru klessu bíla leik við alla í búðini. Rosa gaman :) Og það hjálpaði pottþétt ekki til að við vorum með TVÆR troðfullar innkaupakerrur. ( Já við erum úr sveitinni, og förum bara í Bónus einu sinni í viku :))
Svo er Mamma greyið veik, þannig að hún komst ekki með í okkar árlega verslunarleiðangur til Egs fyrir jólin. En hún er komin á alveg fullt af lyfjum þannig að vonandi að hún fari að jafna sig fljótlega greyið.
Gummi minn er búin að vera hjá mér alltaf á hverjum degi síðan við komum heim á klakan. Erum búin að vera til skiptis heima hjá mér og honum. En núna er hann farin heim og ég er bara hérna á Esk. Á svo eftir að sakna hans mest, yfir jólin alveg þannað til ég sé hann á annan í Jólum. En maður hlýtur nú að lifa þetta af :)
Jæja best að fara að leggjast niður og jafna sig eftir þessa löngu Egilsstaða ferð.
Love, Love , Love...
Posted at 06:45 pm by langsokkur
Permalink
Thursday, December 15, 2005
Jæja þá er maður loksins komin aftur í sveitasæluna. Alveg æðislegt að vera komin heim. Ekki búin að gera annað en spila Trival síðan við komum heim. Fékk það nebbla í afmælisgjöf. Mér finnst svo gaman að spila :)
Það er allt orðið ekkert smá jólalegt hérna heima á Esk. Ljós út um allt. Við pabbi fórum svo í gær og keyptum fleirir jólaljós. Geðveikt!
Gummi minn er byrjaður að vinna. Fékk vinnu í álverinu, verður samt að vinna bara í 3 daga núna fyrir jól og svo i 3 vikur eftir áramót. Ég er hinsvegar bara heimavinnandi húsmóðir meðan að allir hinir eru í vinnuni :) Gera fínt fyrir jólin og svona.
Love, love love
Posted at 12:34 pm by langsokkur
Permalink
Sunday, December 04, 2005
Það var bara voða skemmtilegt í afmælispartýinu mínu á föstudagin. Skemmti mér ekkert smá vel. Fékk Rósu og Einar í heimsókn og svo voru notla Sunneva og Kalli líka.
Við borðuðum alveg rosalega góðan mat, grænmetis lasagne og kjúlla lasagne og eitthvað voða gott meðlæti. Var voða ánægð hvað þetta heppnaðis vel :)
Við horfðum svo á úrslitin í sænska Idolinu og það fór reyndar ekki eins vel og við vonuðum, en það þýðir ekkert að gráta það.
Svo fóru við í SingStar. Það var geggjað gaman!! Fékk nebbla SingStar 80´s í afmælisgjöf þannig að það var þvílíkur 80´s fílingur í gangi:)
Svo var bara mikið drukkið og mikið sungið og mikið fjör. Fórum ekkert út, vorum bara heima, voða notalegt.
Svo er ég víst nú barasta á leiðinni heim núna á föstudagin. Þannig núna tekur bara við vika að pakka og þvo þvott og svona. Gummi er nánast búin með allt, þannig að þetta verður bara voðalega róleg vika hjá okkur.
Hlakka voðalega til að sjá alla heima á Íslandinu.
Jæja, ætla að fara að horfa á Batman með fjölskyldunni.
Love, love, love
P.s: Takk fyrir allar afmælis hringingarnar, sms og internet kveðjur!! Svo fallegt af ykkur að muna eftir mér :)
Posted at 07:30 pm by langsokkur
Permalink
Friday, December 02, 2005
Jæja, þá er komið að því...
Þá er ég víst orðin árinu eldri. Gömul konan. 24!!
Vildi að þið væruð hérna hjá mér svo ég gæti gefið ykkur köku :)
Afmælisbarnið
Posted at 04:04 pm by langsokkur
Permalink
Thursday, December 01, 2005
Ég fór að borga reikninga í gær, sem...again...er svo sem ekki frásögufærandi. Nema að til þess að geta borgað þessa tvo reikninga, sem voru samtals 1600 íslenskar krónur, þurfti ég að borga 800 kr. Ég þurfti að BORGA 800 kr. til þess að geta borgað reikningin!!! Halló!! Hvað er í gangi? Allt í lagi að taka smá gjald en 800 kr!!!
Díses!!
Er ekki sátt við þetta blessaða sænska kerfi, kann miklu betra við þetta þetta heima á íslandi. Get ekki beðið eftir því að flytja aftur heim. Samt bara af út af hlutum eins og þessum, svona fáranlegum 'Don´t make any sense dæmum'. Eins og það að maður getur ekki farið á pósthúsið og spurt hvort maður eigi pakka. Nei! ég verð víst að hafa eitthvað númer sem kom heim í pósti. Þeir geta ekki flett því upp í tölvuni hvort að Lína Aradóttir á pakka! Ég meina hvað ætli það séu margar Lína Aradóttir í Flemingsberg. Mér finnst ekki líklegt að við séum margar. Enda ekki margir Arabar sem heita Lína :=)
Er búin að vera á fullu að baka í dag. Ætla að baka 3 kökur. Ýkt gaman að baka. Bjó til Ostaköku og allt, meira að segja Daim Ostakaka! Er rosalega spennt fyrir þessu öllu saman. Það er reyndar miklu auðveldara heldur en ég bjóst við, að búa til Ostaköku. :)
Verð með smá svona afmælis/Idol partý annað kveld. Það er nebbla lokaþátturinn í sænska Idolinu. Erum voða spennt. Verðum bara fá bara 3 pör, voða kósý. Lasagne og svona.
Gummi er alveg eins og viltur að læra undir próf eins og er. Það er nebbla lokapróf hjá honum á morgun. En það er líka síðasta prófið á þessari önn. Svo á hann bara eftir að skila eitthverjum verkefnum svo komum við heim.
Okay, íslenski Bachelorin er að fara að byrja, bíð spennt!! :)
Love
P.s.: Ég er búin að bæta við símanúmerunum mínum öllum hérna til hliðar. Fer svo sem örugglega ekki fram hjá neinum, ekkert smá stórt :)
Posted at 08:42 pm by langsokkur
Permalink
Tuesday, November 29, 2005
First I was afraid, I was petrified...
Það sem ég legg ekki á mig stundum...
Ég fór í dag með strætó í 42 mínutur til þess að fara í 'bestu matvöruverslun ever'. Ég meina, það er ekki eins og maturinn þar sé eitthvað betri eða þjónustan betri...eða jú víst þjónustan er betri! Og það er til óendanlega mikið úrval af öllu. Það eru til 32 gerðir af brauði! Allavega ég fór alla leið þanngað til þess að geta keypt svona alvöru íslensk...eða spænsk rauð epli. Vá hvað maður lærir að meta rauð epli ef þá fást ekki í búðini á horninu, eða þessari sem tekur 8 mínutur að fara í með strætó.
Allavega, ég get þó með sanni sagt að það sé jólalegt hjá okkur, rauð epli, sem við fáum næstum því aldrei og mandarínur í ávaxtaskálinni okkar. Ummmummmm!!!
Það er allt á kafi í snjó úti. Og það snjóar enn. Það er svo fallegt veður úti. Alveg stillt. Logn. Svona fallegur jólasnór á trjánum. Mest jólalegt.
Ég lifði af þvottadagin í gær. Tók ekki nema 4 klukkutíma, það er nú alls ekki svo slæmt. Svo er líka alltaf svo gaman að sjá hvað hann Gummi minn er ánægður og þakklátur þegar að hann kemur heim og sér að ég hef stritað allan dagin við að þvo þvottinn. Hann er svo sætur í sér hann Gummi minn :)
Þegar að við fluttum hingað til Svíþjóðar þá keyptum við okkur svona ýkt stóra sæng, svona eina stóra fyrir okkur bæði. Hún er sko besta sæng í heimi, ekkert smá gott að geta kúrað svona saman og fengið hita frá honum...þar sem að ég er alltaf hálf-frosin...bara eins og að vera með sinn eigin hitara upp í rúmi. Allavega....þetta er svo sem ekki frásögu færandi nema ég fór í IKEA í dag (I KNOW, what else is new) og ég keypti aðra svona eins stóra sæng handa okkur.
Og af hverju ? gætuð þið spurt, jú við ákvaðum að það væri ekki slæm hugmynd að fjárfesta í annari svona sæng til þess að hafa heima hjá foreldrum okkar þegar að við komum í heimsókn. Við erum sem sagt formlega orðin háð stóru hlýju sænginni okkar. Veit ekki hvort að ég ætti að hafa áhyggjur af þessu eða ekki....en við erum allavega mest ánægð með númer 2 nýju sængina okkar.
Sem betur fer þá tók Kristjana systir hans Gumma með sér eitthvað af farangrinum okkar með sér heim um dagin. Ef hún hefði ekki gert það, þá hefðum við sennilega ekki komist heim um jólin, hefðum getað sent farangurinn kannski, en það hefði pottþétt ekki verið pláss fyrir okkur. :)
Ég veit ekki hvað það er með mig og ALLTOF mikin farangur. Þetta fylgir mér hvert á land...eða hvaða land sem er. :) En þetta fer vonandi að lagast, er svona að vona að þegar að við flytjum aftur ENDANLEGA til Íslands, þá þarf ég ekki að taka með mér alla búslóðina í hvert skipti sem ég fer í flugvél.
Ætla að fara að fá mér ís.
Lína
Posted at 09:32 pm by langsokkur
Permalink
Monday, November 28, 2005
Í dag er þvottadagur. Alltaf skemmtilegasti dagur vikunar, verð nú bara að segja.
Fyrst verð ég að...annaðhvort vakan GEÐVEIKT snemmma, klukkan 6 eða eitthvað, til þess að hlaupa niður í þvottahús og ná þvottavélum. (Það er sko sameiginlegt þvottahús fyrir alla blokkina, og það eru 8 þvottavélar og ekki nema 600 íbúar....þannig að you do the MATH hvað það er auðvelt að ná þvottavélum). Eða ég á líka annan möguleika, sleppa því að vakna alltof snemma og leave it up to faith. Sem sagt bara fara niður í þvottahús um miðjan dagin og vonast til þess að það sé allavega ein vél laus....
Needless to say, þá er mjög misjafn hvernig ástandið er þarna niðri. Stundum eru svoleiðis biðraðirnar, fólk stendur þarna liggur við með morgunverð, hádegis og kvöldverðin í nesti bara til að geta fengið að þvo nokkur handklæði. :)
En ég held nú samt að ég sé oftast frekar heppin. Reyndar var ég einu sinni mætt voða snemma klukkan hálf átta, þvottahúsið opnar ekki fyrr en áttta. Og viti menn, það var svoleiðis fullt þvottahúsið af fólki!! Bara þvílíkt party! Þannig að ég þurfti bara gjöra svo vel að fara aftur upp í íbúð með skottið á milli lappana.
En þetta þvottahúsa vesen er nú samt bara helmingurinn af vandamálinu. Hinn helmingurinn eru 20 kílóin af þvotti sem ég þarf að burðast með niður allar þessar 4 hæðir!!! Og það versa er þegar maður er orðin aðframkoma af þreytu, loksins komin niður í þetta helv...þvottahús....og það er ALLT fullt!!! :)
En annar reyni ég nú bara vera mjög jákvæð og tek þessu öllu með jafnaðargeði. Voða hamingjusöm yfir því að fá að þvo þvott með félagskap og allt. Því miður þá eru flestir samleigendur okkar hérna í blokkinni annað hvort Kínverjar eða Arabar, þannigð að það getur reynst erfittt að tala saman...en þetta reddast allt saman eitthvern vegin. :)
Jæja best að fara að taka úr vél og setja í þurkara. Ég var mjög heppin í dag, gat sett í 5 vélar í einu!!! Geðveikt, gerir dagin bara svona 300 sinnum betri heldur en hann hefði annars verið :)
Lína Þvottabuska
Posted at 11:46 am by langsokkur
Permalink
Sunday, November 27, 2005
Jæja þa er eg buin að fara a djammið tvær helgar i röð. For sem sagt aftur ut i gærkveldi. Eg verd nu ad segja ad maður hlytur bara að vera orðin svona rosalega gaman þvi þetta er pinu þreytandi að fara svona mikið a djammið. Eg meina tvær helgar i röð, þetta hefur nu ekki gerst i langan, langan tima. Eg var buin ad akveda ad fara a djammid a afmælinu minu, sem er næstu helgi. En eg held að i staðin verði ´´eg bara roleg heima. :)
Þetta var samt alveg voðalega gaman. For i tvitugs afmæli hja henni Rosu. Það voru ekkert nema islendingar þarna, alveg fullt, eg held við höfum verið eitthvað rumlega 30. Guðmundur kannaðist við eitthverja ur Haskolanum, eg kannaðist ekki við neinn. En maður var ekki lengi að kynnast folki. Enda var bolla þarna(og við vitum nu oll að það getur verið frekar hættulegt!) þannig að allir vel i glasi. Lika bara gaman að kynnast aðeins fleira folki herna i Sviþjoðinni.
Hann Gummi minn er pinu veikur i dag greyið. Sma hundasjukur. Liggur herna við hliðina a mer i sofanum og þorir ekki að standa upp, þvi hann er svo hræddur um að hann æli! :) Greyið! Er mjög fegin að eg skuli ekki vera svona. En það er nu samt gott að eg skuli vera hress, þvi það verður nu eitthver að vera hjukkan fyrir dagin. Gaman að geta stjanað svona við hann kallinn minn þegar hann er svona veikur.
Kommu takkinn er eitthvað bilaður, þess vegna er hvergi komma yfir neinu hja mer i dag. Kann ekki að laga hann, og verður bara að biða betri tima að fa Gumma til að lita a hann. :)
Þannigð að ætli maður verði bara ekki mjög rolegur i dag. Er að hugsa um að fara ut i bud og kaupa eitthvad voða gott að borða. Ummm..... :)
Herna eru nokkrar myndir af djamminu, mis godar að sjalsogdu, versnuð þvi sem lengra leið a kveldið. :)
Lina Hjukka
Þarna erum við Gummi, voða töffara svipur a honum....annað hvort það eða hann er búin að drekka pínu :)
Rosa afmælisbarn i þviliku stuði!! :)
Kalli og Sunneva i þviliku stuði lika
Og ein enn af okkur Gumma. :) Rett aður en haldið var heim a leið.
Posted at 12:32 pm by langsokkur
Permalink
Thursday, November 24, 2005
Það snjóaði hérna í Stokkhólmi í vikunni. Reyndar ekkert voðalega mikið, bara svona rétt nóg til þessa að maður komst í ennþá meiri jólafíling. Ég get svo svarið það, ég held barasta að ég sé að drukkna í jólafíling þessa dagana. Alltaf með kveikt á rauðu jólakertunum og svona. Æðislega gaman!! Get líka ekki beðið eftir því að koma heim í ennþá meiri jól :)
Það er kannski ekki mikil sjnór, en það er sko mikið meira en nóg af kuldanum. Ég er svo dúðuð þegar að ég fer út úr húsi að ég get varla hreyft mig, alveg eins og Snæfinnur Snjókarl. Ég segi nú bara Thank God fyrir lopapeysuna sem að Dóra frænka prjónaði á mig fyrr i haust, án hennar væri ég sennilega króknuð! :)
Ég bjó til Kókosbollur í dag. Geggjað stolt af sjálfri mér. Var reyndar, held ég, auðveldasta uppskrift sem ég hef nokkurn tíma farið eftir, en hvað með það...ég bakaði!! :) Þetta er reyndar svona nammi namm sem að maður getur bara fengið sér eina og svo ekki meir. Sem í sjálfu sér er ekki svo slæmt, það er þá allavega lítil sem engin hætta á að maður missi sig í öllum kókosnum :)
Kristjana systir hans Gumma er enn á ný komin aftur til Stokkhólms! Hún er alltaf hérna :) Geggjað gaman að fá hana alltaf í heimsókn. Því miður er hún ekki hjá okkur, heldur á eitthverju voða fínu hóteli niður í bæ, en við fáum þó allavega að sjá hana og svona. Og ég ætla að fara niður í miðbæ á morgun að versla með henni! Hlakkar ekkert smá til :) Geggjað gaman að hafa eitthvern til að fara að versla með. Líka sérstaklega gaman, því maður sér Kristjönu svo sjaldan :)
Ég fór í HM leiðangur í dag og í gær. Í gær fór ég til þess að versla pínu af fötum á littla krílið hennar Sigríðar, sem er reyndar ekki alveg komið í heimin ennþá, en þetta er að styttast og styttast. Ekki nema 2 mánuðir eftir!! Geggjað! :)
Svo í dag fór ég til þess að finna eitthvað voða gellulegt á hana Þórey mína. Hún alveg að farast úr fataleysi greyið þarna heima á Esk. :) Hun verður pottþétt algjer gella heima um jólin.
Jæja, þá er best að fara að gera sig fínan, eða eitthvað. Ég er nebbla að fara í bíó með genginu. Erum að fara á Harry Potter! Geðveikt gaman mar :)
Kveðja
Lina
Já mér er svona Kalt!! Þarna er ég í Danmörk að fara að sofa í fínu lopapeysuni sem að Dóra frænka prjónaði á mig. Er ég ekki fín? :) Ég elska þessa peysu, hún er best!
Posted at 07:30 pm by langsokkur
Permalink
Monday, November 21, 2005
Komin aftur heim til Svergie
Jæja, þá er runnið af manni og maður komin aftur heim. Alltaf gott að komast heim aftur þegar að maður er búin að vera á svona ferðalagi.
Þetta var alveg einstaklega vel heppnuð helgi hjá okkur. Alveg æðislegt að sjá allar stelpurnar aftur. Og nú er sko búið að ákveða að þetta verði gert einu sinni á ári héðan af. Það er nú ekki hægt að láta líða svona langan tíma áður en við hittums aftur, það er sko alveg meira en á hreinu.
Ég gerði nú samt alveg fullt meira heldur en bara að djamma. Við djömmuðum meira að segja eiginlega bara á laugardeginum, fengum okkur bara pínu í glas á föstudagskveldinu. Ég skoðaði fullt af rosa flottum bygginugm og svona. Og meira að segja kikju sem var byggð 1300 og eitthvað. Ekkert smá flott!! Svo var farið á nokkur söfn líka.
Fór á eitt af fáum kvenna söfnum í heiminum. Það var alveg rosalega gaman að sjá hvernig þetta var fyrir okkur konurnar hérna áður fyrr. Og vill ég bara segja...Thank god for Always ultra!!! Því að var nebbla líka smá svona sýning á því hvernig dömubindin voru hérna áður fyrr...og já þetta var sko mjög athyglisvert, svona to say the least :)
Svo komu Ríkey og Haukur í smá heimsókn á föstudeginu. Alveg æðislega gaman að sjá þau. Stoppuðu því miður voða stutt, þannig að maður verður bara að bæta úr því um jólin :)
Svo fórum við á klúbb sem að var með tveim dansgólfum og það var spiluð 80´s tónlist á öðru þeirra og vá hvað við dönsuðum mikið!!! Það alveg lak af manni sko. Þetta var svo gaman!!
Svo er ég víst að fara á djammið aftur næstu helgi. Er að fara í tvítugs afmæli hjá henni Rósu. Það er Íslensk stelpa sem við kynntumst hérna í Svíþjóð. Það verður þá í fyrsta skipti sem við förum á djammið hérna í Svíþjóðinni. Bíð voða spennt eftir því að sjá hvernig það fer...vonandi betur en síðast þegar við reyndum :)
Jæja, hérna eru nokkrar myndir frá því um helgina :)
Ferðalangurinn mikli
Ríkey og Haukur að horfa á mig elda :)
Við Katrin tróðum okkur í eitthvern svona hjólavagn :)
Hérna erum við allar saman í Den Gamle by safninu í Aarhus, voða gaman og voða KALT!! :)
Ég, Kristina, Daniela, Marianne og Katrin
Ég, Katrin og Kristina með vin okkar Jim Beam :)
Komnar á djammið, smá þreyttar eftir að hafa dansað endalaust mikið
Ég á leið heim. Varð að sitja á töskuni svo ég gæti lokað henni...but what else is new?!? :)
Posted at 05:06 pm by langsokkur
Permalink
Check out my photos on
Mynda albúmið okkar
!
|
|
|
 |