Entry: Lost Wednesday, February 01, 2006

Check out my photos on Mynda albúmið okkarm !



Jæja þá er enn einn þátturinn af Lost búin. Það er komin 9 þáttur af 2 seríu hérna í Svíþjóð. Ég skal notla ekkert segja hvað gerist, en ég verð bara að segja að ég er orðin pínu pirruð út í Lost. Ég verð eiginlega alltaf smá pirruð í hvert skipti sem ég horfi á þátt. Það gerist nákvæmlega EKKERT!!! Jú það gerist notla fullt, en samt ekkert. Það sem þessum rithöfundum dettur ekki í hug að skrifa inn í þessa þætti, þeir ættu að fá verðlaun fyrir hugmyndaflug.

Ég verð nú bara að segja fyrir mig, að Lost er ofmetin. Mér finnst þeir bara hafa misst spennuna. Eða kannski er ég bara pirruð af því að maður fær aldrei að vita neit!!! Þetta heldur bara endalaust áfram......goes on....and on.....and on...Angry

Að öðrum fréttum. Við Gummi erum að fara til Parísar eftir tvær vikur. Okkur hlakkar notla alveg rosalega til. Ætlum í svona rómó ferð fyrir Valentínusardagin...ég veit, er mest Amerísk!!! Tongue  Við ætlum sem sagt að vera í 3 nætur. Komum á miðvikudagskveldi og förum aftur heim á laugardagskveldi.Fundum alveg voða fínt hótle, mjög nælægt miðbænum. Og svo er planið bara að labba af okkur fæturna. Bara skoða allt sem mögulega er hægt að skoða á þrem heilum dögum.

Já svo erum við að fá heimskókn frá Þýskalandi eftir viku. Mike vinur hans Gumma er að koma í heimsókn verður hjá okkur í 4 daga. Það verður örugglega voða gaman að fá heimsókn. Erum allavega voða spennt yfir þessu öllu saman.Wink

Það á víst að djamma alveg fullt. Það verður stráka djamm á föstudeginum og svo ætlum við öll saman á Íslenskt Þorrablót hérna í Stokkhólmi. Það verður örugglega voða stuð. Erum reyndar búin að ákveða að fara ekki á matin. Sem er kannski smá glæpur þegar að maður er að fara á Þorrablót, en Gummi borðar ekki þorramat og ég er grænmetis æta...og vinir okkar borða ekki þorramat. Þannig að þetta lá eiginlega ljóst fyrir að það væri sniðugast að fara bara á ballið...sem byrja kl 21. (Ekkert smá snemmt) Surprise

Jæja komið nóg bull í bili.

Takk fyrir að vera svona dugleg að kommenta, gaman að vita að ég er ekki búinað missa alla lesendurna mína eftir þetta mjög svo langa Jólafrí mitt. Wink

Kveðja frá Stokkhólminum,

LínaSmile

(P.s. Var að uppgvöta broskallana...,missti mig smá...Shades)

   4 comments

Skotthildur
February 3, 2006   02:31 PM PST
 
Hæ skvísí pís. Vildi bara segja þér að ég er komin með gamla bloggið aftur! Skonsan er í einhverju svakalegu verkfalli þessar vikurnar :/

God hvað ég öfunda ykkur svo að vera fara til Parísar, míns langar svo eitthvert út, en peningastaðan er ekki alveg að samþykkja soleis "vitleysu" :(
Rósa Munda
February 3, 2006   10:25 AM PST
 
Lost? þeir eru fínir og í 11 þætti gerist svolítið en svo er 12 þáttur aftur svona þáttur þar sem ekkert gerist... þeir eru líka vel gerðir með flottum leikurum ( lesist kynæsandi leikurum ), ágætt sjónvarpsnammi.
Lína
February 2, 2006   06:00 PM PST
 
Hehe...já aldrei að vita nema það virki :) Já get ekki beðið eftir að skoða bara allt!!! Ég er í fullu starfi þessa dagana að skoða og læra um alla þessa staði sem við ætlum að skoða. Ég skal taka alveg fullt af myndum. :)
Ríkey
February 2, 2006   12:19 PM PST
 
heyrðu.. Lost er nú algjör snilld. en ég er sammála þér um að maður verður alltaf pirraðri og pirraðri með hverjum þættinum. Ég bíð allavega spennt eftir að fá að vita öll svörin.
Ég öfunda þig ekkert smá af því að vera að fara til Parísar... bare det var mig!... Það er ekkert smá mikið sem mig langar til að sjá þar.
Kallaðu á mig þegar þú ert komin á toppinn á Eiffelturninn, það er aldrei að vita nema ég heyri í þér.
Love you

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments