Entry: Guð minn hvað það er kalt úti... Sunday, February 05, 2006

Check out my photos on Mynda albúmið okkarm !



Jæja þá er enn ein helgin komin og farin. Þetta var bara fínasta helgi. Róleg og góð. Fórum í fyrsta skipti saman í nýju ræktina okkar á laugardagin. Það var bara fínt, voða fín rækt.

Gummi kvartaði eitthvað yfir því hvað tækin væru gömul, en mér fannst þau bara fín. Gerði nú ekkert voðalega mikið, get nú lítið gert svo sem, þannig að ég þurfti að taka því rólega. Annars er það að frétta að ég er loksins að fara í blessaða sneiðmyndatöku!

Svona fyrir þá sem ekki vita þa er ég búin að vera eitthvað slæm undanfarið í annari hendinni og brjósti...ég veit too much information!!!...en er allavega að vinna í því að fá eitthvað gert i þessu. Big Smile

Svo í dag var ´laundry day´ þannig að það var notla fjör eins og venjulega. Ég setti í 7 vélar, samt þvoði ég síðast fyrir viku. Gummi var í vægu sjokki yfir því að ég skildi hafa þvottin í allar þessar vélar, sagði að hann hefi sko pottþétt bara hent þessu í eina!! Surprise

Guði sé lof að ég skuli sjá um þvottinn!! Shades

Mamma skilid heldur ekkert í þessu þegar ég sagði henni allar þessar þvottasögur mínar og spurði mig hvort ég myndi þvo af Sunnevu og Kalla líka....heehehhe....ha? nei, bara af mér og Gumma.Tongue

Svo er bara fótbolti alveg í fullum gangi núna. Liverpool vs. Chelsea...mest spennandi. Vona svona mín vegna að Liverpool vinni...annars verður hann Gummi minn sem ónýtur maður það sem eftir er af degi.

Jæja, ætli ég láti þetta ekki duga í bili. Að lokum er ég svo með smá svona skemmtilega skoðunarkönnun sem ég stal af blogginu hennar Gullu skvísu.

Endilega spreytið ykkur, gaman að sjá hvað þið vitið mikið um mig.

Kveðja úr -10°C,

Lína.

1. Hver er augnlitur minn??
2. Hver er hárlitur minn??
3. Númer hvað að skó nota ég??
4. Hvað finnst mér skemmtilegast að gera??
5. Hvernig bíl á ég??
6. Hvar vinn ég/hvað er ég að læra??
7. Hver er uppáhalds liturinn minn??
8. Hvernig persóna er ég??
9. Hvernig eyði ég frítíma mínum??
10. Hversu vel þekkiru mig??

Ég varð bara að setja þessa mynd inn. Þetta er Rökkvi Þór, sonur hennar Þóreyjar vinkonu. Algjört rassgat.

 

   5 comments

Rósa Munda
February 7, 2006   10:14 AM PST
 
Jú sorglegt en við höfum ekki verið í sama landi síðan þú varðst fullorðin ;) þannig að það hafa ekki verið tækifæri. En það lagast eftir 5-7 ár ef við verðum báðar á Íslandi þá og mögulega á sama landshluta hehe. Þar til lesum við bloggið... svo ætla ég bráðum að setja upp eigin síðu sem verður brjálæðislega skemmtileg ;)
Lína bloggari
February 6, 2006   06:10 PM PST
 
Takk fyrir að taka þátt Þórey, Rósa Munda og Ríkey!! Geðveikt gaman að sjá hvað þið þekkið mig vel.

Ég verð nú bara að segja Rósa, og þú ert kannski sammála mér, finnst þér ekki pínu sorglegt að við skulum eiginleg bara þekkja hvor aðra í gegnum bloggið...sérstaklega þar sem við erum systkinabörn... :)
En við erum allavega að bæta úr þessu með því að lesa bloggið hjá hvor annari.

Kem með svör fljótlega, bara svona in case það vilji eitthver annar spreyta sig. Annars verð ég að segja að þið hafið staðið ykkur með príði. :)
Ríkey
February 6, 2006   04:10 PM PST
 
Læt reyna á þetta...

1. Hver er augnlitur minn? blár
2. Hver er hárlitur minn?? ljós
3. Númer hvað að skó nota ég?? 41 mynnir mig... held allavega að ég hafi ekki getað fengið lánaða hjá þér skó...
4. Hvað finnst mér skemmtilegast að gera?? spila!
5. Hvernig bíl á ég? engann
6. Hvar vinn ég/hvað er ég að læra? Viðskiptafræði í fjárnámi.
7. Hver er uppáhalds liturinn minn? bleikur. Held að það fari nú ekki framhjá neinum :D
8. Hvernig persóna er ég? opin, glaðvær og yndisleg.... og frekar ofvirk... og óheppin.
9. Hvernig eyði ég frítíma mínum? við að vinna.
10. Hversu vel þekkirðu mig? tja...segð þú mér... hvernig stóð ég mig?
Rósa Munda
February 6, 2006   03:17 PM PST
 
1. Hver er augnlitur minn?? ljósblár
2. Hver er hárlitur minn?? ljós
3. Númer hvað að skó nota ég?? 40(m.v.stærð)
4. Hvað finnst mér skemmtilegast að gera?? spila,dansa,drekka og ekki endilega í þessari röð:(fengið af blogginu)
5. Hvernig bíl á ég?? Áttu bíl?
6. Hvar vinn ég/hvað er ég að læra?? læra eitthvað viðskiptafræðitengt
7. Hver er uppáhalds liturinn minn?? bleikur
8. Hvernig persóna er ég?? sem talar m.m. hratt, skemmtir sér og öðrum.
9. Hvernig eyði ég frítíma mínum?? í skemmtanir og fjör
10. Hversu vel þekkiru mig?? Eiginlega bara í gegnum bloggið.

Þórey Office beib
February 6, 2006   10:49 AM PST
 
djí já hvað eruð þið að gera alla daga ! velta ykkur upp úr drullu eða finnst nú þvotturinn á Tárbakka ægilegur en þetta slær nú öll met !

GLÆSILEG MYND BY THE WAY !!!!!

allt of auðveldar spurningar ætla ekki að svara þeim því þá sjá allir réttu svörin en gæti svo sem sent þér þau það er annað mál sko :)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments