Entry: Allt að verða klukk-vitlaust! Thursday, February 09, 2006

Check out my photos on Mynda albúmið okkarm !



Meira klukkeríklukk

Enn eitt helv...klukkið!!!Angry  Nei, nei mér finnst þetta alveg rosalega skemmtilegur leikur...takk fyri að leyfa mér að vera með Lena Dóra...Shades

Here goes nothing:


Fjögur störf sem ég hef starfað við á ævinni:

  • Hraðfrystihús Eskifjarðar, fiskvinnsla og rækjuvinnsla, í alltof mörg ár.
  • Gjaldkeri hjá Íslandspósti, Esk og Rvk.
  • Au Pair í Bandaríkjunum í alltof mörg ár... Surprise
  • Skúringarkona

Þetta eru allt alveg voðalega spennadi störf og hef ég nú unnið við mikið fleiri spennandi störf í viðbót.

Fjórar myndir sem ég get horft á aftur og aftur

  • Grease
  • Fjögur Brúðkaup og jarðarför
  • Shawsank Redemption
  • When Harry met Sally

Mér finnst alveg æðislega gaman að horfa á fullt af góðum myndum og eru þessar fjórar bara dropi í hafið.

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

  • Eskifjörður, Ísland
  • Reykjavík, Ísland
  • Kansas, Bandaríkin
  • Stokkhólmur, Svíþjóð

Búið að vera sko meira en nóg flakk á mér. Ég var einmitt að telja það upp um dagin hvað ég hefði haft mörg heimilisföng um ævina og niðurstaðan var 13!!l Dísus, hvað mig hlakkar til að hætta að flytja. Tongue

Fjórir sjónvarpsþættir sem ég fíla að horfa á:

  • American Idol ( Ég veit!!)
  • Grey´s anatomy, besti nýji þátturinn.
  • Það var lagið ( ég elska að syngja með! ) Algjör nörd :)
  • Friends ( Ég er búin að eignast 7 seríur, alltaf að komst nær takmarkinu...sem er að eignast þær allar!!! Smile

Fjórir staðir sem ég hef farið í frí:

  • Kanarý
  • Seattle, Washington
  • Key West, Florida
  • Bodrum, Tyrkland

Þetta er nottla líka bara dropi í hafið. Svo eftir viku þá get ég bæt París á listan!! Wink

Fjórar heimasíður sem ég heimsæki daglega: 

  • mbl.is
  • langsokkurinn.blogdrive.com
  • barnaland.is
  • studmundur.blogdrive.com
  • Og svo kíkji ég náttúrulega á alla hina líka Big Smile

    Fjórar uppáhalds matartegundir:

    • Grænmeti
    • Mömmumatur
    • Pasta
    • Kartöflur

    Fjórir cd sem ég get ekki verið án:

    Ég er nú eiginlega bara alveg hætt að hlusta mjög mikið á geisladiska. Þetta er bara allt í tölvuni. En ef ég þarf að velja þá vel ég 4 diska með Celine Dion. Shades

    Fjórir staðir sem ég myndi frekar vilja vera á:

    • Heima á Íslandi...með Gumma mínum.
    • Á ströndinni að sóla mig...með Gumma mínum að sjálfsögðu.
    • Í Kína að skoða Kínamúrin með Gumma.
    • Heima hjá mömmu og pabba...og Gummi fær nottla að koma með líka Tongue

    Fjórir bloggarar sem ég klukka:

    Sorry...Shades

    • Ríkey
    • Rósa Munda
    • Gulla Skvísa
    • Rósa Svíji

    Jæja ætli ég láti þetta bara ekki duga fyrir dagin í dag. Það tók mig svona 3 klukkutíma og 23 mínutur að klára þetta blessaða klukk, þannig að ég ætla að fara að leggja migTongue

    Knús frá Svíþjóð,

    Lína


       0 comments

    Leave a Comment:

    Name


    Homepage (optional)


    Comments