Check out my photos on Mynda albúmið okkarm !
|
Jæja ætli ég verði nú ekki að segja frá Þorrablótinu sem var síðustu helgi. Ég verð nú ekki lengi að því...því ég fór ekki...... Það var svo hryllilega kallt úti -17°C, og blótið var í svona klukkutíma fjarlægð og við erum ekki með bíl hérna úti. Þannig að við sáum fram á það að við myndum sennilega verða úti á leiðini heim, þannig að við ákváðum bara að vera bara heima og láta fara vel um okkur. Það var bara voðalega notalegt. Það hefði auðvitað verið voðalega gaman að fara, en svona erum við bara orðin gömul, viljum frekar vera heima heldur en að fara á djammið. Jæja svo er það bara Paris here we come!! Við Gummi förum til Parísar á morgun. Við erum ekkert smá spennt. Búin að finna á netinu allt sem við ætlum að skoða og erum komin með voða plan fyrir alla dagana. Ég er meira að segja búin að pakka næstum því ekki of mikið Svo er Valentínusardagurinn í dag.... Happy Valentinesday allir. Í tilefni dagsins bakað ég pönsur handa Gumma mínum. Hann var að vana alveg voðalega þakklátur, og fékk ég fullt af kossum fyrir. :) Jæja læt þetta duga í bili. Svo skal ég koma með fullt af myndum og fregnum þegar ég kem frá París. Bið að heilsa í bili... Smá myndahorn: Ég og Tristan Snær litli frændi minn, sonur hennar Sigrúnar. |
| Ríkey February 15, 2006 01:59 PM PST En hvað hann er mikið krútt. Til hamingju með hann Sigrún. Skemmtiði ykkur vel í París. Hlakka til að sjá myndir og heyra frá ferðinni. | ||
| Stuðmundur February 15, 2006 11:09 AM PST Takk fyrirpönsurnar og við hefðum orðið úti í -17¨C svo við höfðum löggild ástæðu fyror því að vera heima :) | ||
| Skotthildur February 14, 2006 07:53 PM PST ÆJ algjör snúllí vúllí hann litli frændi þinn og kominn með nafn og allt saman! Hafið það gott í París elskurnar mínar og skemmtið ykkur fyrir mig líka :) Var samt að velta því fyrir mér... fæddist við ekki á sama 1981 árinu ;) skrópaðir á þorrablót :/ hehe | ||
| Leave a Comment: |